Á fundi skipulagsfulltrúa 21. júní 2013 var lögð fram fyrirspurn Aðalbjörns Þórólfssonar dags. 14. júní 2013 um að byggja tvöfaldan bílskúr á lóðinni nr. 56 við Sörlaskjól, skv. meðfylgjandi rissi. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. júní 2013.
Svar
Ekki er gerð athugasemd við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 26. júní 2013,. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún.