Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. febrúar 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. febrúar 2017 þar sem sótt er um leyfi til að stækka þaksvalir íbúðar á efstu hæð, sjá erindi BN048703, fjölbýlishúss á lóð nr. 18 við Friggjarbrunn. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. febrúar 2017. Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 30. janúar 2017. Gjald kr. 10.100
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 17. febrúar 2017, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögninni.