Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 711
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. nóvember 2018 var lögð fram umsókn Páls V. Bjarnasonar dags. 21. nóvember 2018 ásamt bréfi dags. 5. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hólatorgsreits vegna lóðarinnar nr. 9 við Hávallagötu. Í breytingunni felst stækkun húss, samkvæmt uppdr. P ARK teiknistofu sf. dags. 19. desember 2018. Einnig er lagt fram álit Péturs H. Ármannssonar arkitekts dags. 15. nóvember 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Hávallagötu 7 og 11 og Sólvallagötu 2 og 4.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.