Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. desember 2012 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta fataherbergi og herbergi í rishæð, koma fyrir kvist á norðurhlið og kvist og svalalokun á vesturhlið í húsinu á lóð nr. 22 við Nökkvavog. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. nóvember 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. nóvember 2012. Stækkun: 10,2 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 867
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.