Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Zeppelin arkitekta f.h.
Landslagna ehf.
dags. 22. janúar 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skuggahverfis vegna lóðarinnar nr. 6A við Frakkastíg. Breytingin gengur m.a. út á að stækka stigahús sunnan á húsinu og byggja tveggja hæða viðbyggingu í sundinu norðan við gamla húsið, skv. uppdráttum dags. 21. janúar 2014. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. febrúar til og með 7. mars 2014. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar