Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Freys ehf.
dags. 28. nóvember 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hádegismóa vegna lóðanna nr. 1 og 3 við Hádegismóa. Í breytingunni felst sameining lóða og breytt uppbygging, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf. 15. desember 2014. Tillagan var auglýst frá 21. janúar til og með 4. mars 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar