Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júlí 2015. Sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar viðbyggingu vestan við einbýlishús á lóð nr. 6 við Vesturbrún. Erindi var grenndarkynnt frá 24. júlí til og með 22. ágúst 2015. Engar athugasemdir bárust. Jafnframt er erindi BN045470 fellt úr gildi. Stærð viðbyggingar: 22,5 ferm., 68 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.