Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. desember 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja opið bílskýli framan við bílskúr fjölbýlishúss, sem nú er nýtt sem vinnustofa á lóð nr. 3 við Hrísateig. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. maí 2012 vegna sambærilegs erindis. Erindi fylgir samþykki meðeigenda í húsi áritað á uppdrátt.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 23. maí 2012.