Á fundi skipulagsstjóra 20. apríl 2012 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. apríl 2012 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu við geymsluskúr á baklóð tvíbýlishúss á lóð nr. 26 við Óðinsgötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 23. apríl 2012.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 23. apríl 2012.