Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi Þuríðar Ottesen dags. 11. september 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.0 vegna lóðar nr. 1 við Óðinsgötu. Í breytingunni felst að rífa geymslu á baklóð og byggja nýja sem nær að lóðarmörkum til austurs, samkvæmt uppdr. K.J. hönnunar. Tillagan var grenndarkynnt frá 20. september til og með 18. október 2012. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar