Á fundi skipulagsstjóra 1. júlí 2011 var lögð fram fyrirspurn Norður íbúða ehf. dags. 28. júní 2011 varðandi breytingu á skilmálum á lóðinni nr. 1-5 við Ferjuvað vegna fjölda íbúða og bílastæða. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lögð fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 4. júlí 2011.
Svar
Jákvætt að breyta íbúðasamsetningu í samræmi við þá leiðsögn sem fram kemur í umsögn skipulagsstjóra dags. 4. júlí 2011.