Lögð fram fyrirspurn Franks Óskars Chatham Pitt dags. 22. janúar 2018 varðandi rekstur veitingastaðar í nýbyggðri nýbyggingu að Laugavegi 15 sem snýr að Hjartagarðinum. Einnig eru lagðar fram teikningar Magga Jónssonar arkitekts dags. janúar 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2018.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2018.