Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. janúar 2011 þar sem sótt er um leyfi fyrir þegar gerðri viðbyggingu í innskoti á austurhlið, breyttu skipulagi innanhúss, breytingum og síkkun á gluggum og byggingu skjólveggja og setlaugar í garði við einbýlishús nr. 14 á lóð nr. 10-16 við Bjarmaland. Meðfylgjandi er bréf byggingatæknifræðings vegna breytinga dags. 6. janúar 2011. Stækkun: 17,7 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 8.800 + xx
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Samræmist deiliskipulagi.