Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
GP-arkitekta ehf.
, mótt. 27. október 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Örfiriseyjar vegna lóðarinnar nr. 31 við Fiskislóð. Í breytingunni felst breytingu á hámarksnýtingarhlutfalli lóðar úr 0,6 í 1,0, samkvæmt uppdr.
GP-arkitekta ehf.
, dags. 11. nóvember 2016. Tillagan var auglýst frá 7. desember 2016 til og með 23. janúar 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar