Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. mars 2018 var lögð fram fyrirspurn Móheiðar H. Geirlaugsdóttur og Atla V. Thorstensen dags. 26. febrúar 2018 um að setja svalir á bakhlið hússins á lóð nr. 10 við Stangarholt. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. mars 2018.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags 16. mars 2018.