Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. september 2017 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem gerð er grein fyrir íbúð í kjallara og íbúðum þannig fjölgað úr fimm í sex og til að innrétta gististað í flokki II, teg. g í húsi á lóð nr. 53B við Grettisgötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. september 2017. Gjald kr. 11.000
Svar
Ekki er gerð athugasemd við fjölgun íbúða, en óheimilt er að fjölga gistirýmum, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2017.