Á fundi skipulagsfulltrúa 4. september 2015 var lögð fram fyrirspurn Jóns Hrafns Hlöðverssonar, mótt. 28. ágúst 2015, um að fjölga íbúðum hússins á lóð nr. 114 við Úlfarsbraut úr 9 í 10 ásamt fjölgun bílastæða úr 9 í 10, samkvæmt tillögu
Mansard - Teiknistofu ehf.
, ódags. Einnig er lagt fram bréf
Mansard - Teiknistofu ehf.
dags. 26. ágúst 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. september 2015.
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 17. september 2015.