Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. febrúar 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. febrúar 2019 þar sem spurt er hvort leyfi fengist fyrir annars vegar að færa útlit glugga á austurhlið, sem jafnframt er framhlið húss, í upprunalegt horf og hins vegar að bæta við nýjum glugga, hurð og svalapalli með tröppum niður á lóð á vesturhlið húss, sem jafnframt er bakhlið og aðkomuhlið húss á lóð nr. 1 við Skógargerði. Einnig er spurt hvort leyfi fengist til að færa eldhús og baðherbergi á 1. hæð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019. Fyrirspurn fylgja ljósmyndir og skissur.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019.