Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Vesturbugtar fyrir lóðina nr. 2 við Grandargarð, Allianz reit. Breytingin felur í sér stækkun á lóðarmörkum og byggingarreit á lóðinni, aukningu byggingarmagns og skilgreiningu á gististarfsemi á efri hæðum og verslun og þjónustu á jarðhæðum, samkvæmt uppdr.
Basalt arkitekta ehf.
, dags. 29. maí 2017. Einnig er lagt fram minnisblað Haralds Ólafssonar veðurfræðings, dags. 12. október 2016. og umsögn
Faxaflóahafna sf.
, dags. 20. janúar 2017. Lagður fram tölvupóstur Faxaflóahafna, dags. 13. júlí 2017 og tölvupóstur Kristjáns Gíslasonar, dags. 23. júlí 2017, þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti.