Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. apríl 2016 þar sem sótt er um leyfi til að gera íbúð í risi að séríbúð og loka á milli hennar og íbúðar á 2. hæð, síkka þakglugga og byggja svalir á rishæð fjölbýlishúss á lóð nr. 35 við Bárugötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. apríl 2016. Stærðarbreytingar: ferm., rúmm. Gjöld kr. 10.100
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. apríl 2016. Ágústa Sveinbjörnsdóttir verkefnisstjóri vék af fundi við afgreiðslu málsins.