Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 11. ágúst 2015 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki II fyrir gesti á 1. hæð íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 84 við Laugaveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. ágúst 2015.
Erindi fylgir leigusamningur dags. 6. desember 2014, óundirritaður. Gjald kr. 9.823
Svar
Jákvætt með þeim skilyrðum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. ágúst 2015.