Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi
Jáverks ehf.
dags. 10. janúar 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts vegna lóðarinnar nr. 1 við Árvað. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum úr 9 í 11 og að fjölga bílastæðum úr 18 í 20, samkvæmt uppdr.
Ask Arkitekta ehf.
dags. 28. janúar 2012. Tillagan var grenndarkynnt frá 8. febrúar til og með 8. mars 2013. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar