Á fundi skipulagsfulltrúa 4. apríl 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. apríl 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að starfrækja veitingastað í húsi (matshluta 02) á lóðinni nr. 43 við Skólavörðustíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. apríl 2014.
Svar
Ekki gerð athugasemd við fyrirspurnina, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags 11. apríl 2014.