Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. júlí 2019 var lögð fram fyrirspurn Brynjólfs Nikulásar Jónssonar dags 20. júní 2019 varðandi breytingu á notkun hússins á lóð nr. 21 við Síðumúla, fnr. 227-8409, úr skrifstofu í íbúðarhúsnæði eða hótel. Fyrirspurn var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. ágúst 2019..
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. ágúst 2019 samþykkt.