A lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. ágúst 2011 þar sem sótt er um leyfi til að rífa gamlan skúr og byggja bílskúr úr timbri á steyptum undirstöðum með bárujárnsþaki á lóð nr. 23 við Bræðraborgarstíg. Erindi var grenndarkynnt frá 6. október til og með 3. nóvember 2011. Engar athugasemdir bárust. Niðurrif: 17.25 ferm., 36.3 rúmm. Bílskúr: 40,5 ferm., 121,5 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 8.000 + 9.720
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.