Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. október 2019 var lögð fram fyrirspurn Jóns Hrafns Hlöðverssonar dags. 16. september 2019 ásamt bréfi dags. 16. september 2019 um að skipta íbúð merkt 01 0101 í húsinu á lóð nr. 18 við Barmahlíð í tvær íbúðir, samkvæmt uppdr.
Mansard - teiknistofu ehf.
dags. 15. september 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2019.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrú dags. 18. október 2019.