Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 24. mars 2015. Sótt er um leyfi til að samþykkja ósamþykkta íbúð í kjallara, setja nýja glugga á vesturhlið, stækka núverandi glugga á suður- og vesturhlið og tengja geymsluskúr á lóð við rafmagn, sbr. fyrirspurn BN048207, sem fékk jákvæða umfjöllun, við hús á lóð nr. 34 við Ránargötu. Erindi var grenndarkynnt frá 2. apríl til og með 30. apríl 2015. Engar athugasemdir bárust. Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 7. október 2014, samþykki eigenda á nr. 36 og samþykki eigenda á nr. 34 fór með fyrirspurn. Meðfylgjandi einnig umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 27.1. 2015, bréf arkitekts dags. 17.3. 2015 Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.