Á fundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. febrúar 2014 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta íbúðarhúsi í gistiheimili í flokki II fyrir allt að tíu gesti í húsi nr. 2B, matshluta 02, á lóðinni nr. 2 við Grettisgötu. Móttaka gististaðarins verður staðsett í gistiheimilinu að Grettisgötu 2A, sömu eigendur eru að báðum húsunum. Samþykki meðlóðarhafa dags. í desember 2013 fylgir erindinu. Gjald kr. 9.500 Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2014..
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2014.