Á fundi skipulagsfulltrúa 9. maí 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. maí 2014 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta gististað í flokki IV, teg. b, gistiheimili með fjórum gistieiningum fyrir ?? gesti, og tvær skrifstofueiningar á jarðhæð í bakhúsi á lóð nr. 1 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. maí 2014. Gjald kr. 9.500
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. maí 2014.