Á fundi skipulagsfulltrúa 23. október 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. október 2015 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta 6 íbúðir og byggja tvennar svalir á norðurhlið og fernar á suðurhlið 4. hæðar skrifstofuhúss á lóð nr. 6 við Brautarholt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29.október 2015. Gjald kr. 9.823
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 29.október 2015.