Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. maí 2018 var lagt fram bréf
Lausna lögmannsstofu sf.
dags. 3. maí 2018 varðandi byggingu sólhúss á svölum 1. hæðar hússins á lóð nr. 56 við Flókagötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. júní 2018.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. júní 2018 samþykkt. Grenndarkynna þarf byggingarleyfisumsókn berist hún.