Á fundi skipulagsfulltrúa 17. október 2014 var lögð fram fyrirspurn Lilju Gunnarsdóttur og Eyjólfs Inga Ásgeirssonar dags. 10. október 2014 um að byggja kvist og svalir á rishæð hússins á lóð nr. 63 við Laugaveg og breyta notkun séreignahlutans úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2014.
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2014.