Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. júní 2012 þar sem sótt er um leyfi til þess að fjarlægja núverandi svalir á annarri hæð og í framhaldi byggja svalir á annarri og þriðju hæð. Jafnframt er gerð grein fyrir núverandi innra fyrirkomulagi íbúða 0201 og 0301 í húsinu á lóðinni nr. 20 við Ljósvallagötu. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 28.júní 2012. Samþykki meðeigenda í húsi dags. 06.03.2012 fylgir erindi. Samþykki eins meðeiganda (tölvubréf frá BNA) dags. 21.06.2012 fylgir erindi. Samþykki nágranna í húsum nr. 18 og 22 við Ljósvallagötu dags. 07.05.2012 fylgir erindi. Ný skráningartafla fylgir erindinu. Gjald kr. 8.500
Svar
Frestað. Erindið verður grenndarkynnt þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir í samræmi við umsögn skipulagsstjóra dags. 28. júní 2012.