Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. febrúar 2014 þar sótt er um leyfi til að byggja 2. áfanga hótels á Hljómalindareit, staðsteypt hús á fimm hæðum sem í verða 64 herbergi, fjórar íbúðir, veitingasalur, eldhús og verslunarrými á aðgönguhæðum húsa á lóðum nr. 30, 32 og 34 við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2014.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2014 samþykkt.