Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi
Laugar ehf.
dags. 22. ágúst 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.2 vegna lóðarinnar nr. 74 við Laugaveg. Í breytingunni felst breytt notkun á jarðhæð hússins, samkvæmt uppdrætti Zeppelin arkitekta dags. 29. ágúst 2012. Tillagan var grenndarkynnt frá 6. september til og með 4. október 2012. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar