Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. maí 2018 þar sem sótt er um leyfi til að stækka kvist á suðurhlið ásamt því að breyta eignarhaldi á geymslum til samræmis við eigendaskipti sem átt hafa sér stað í húsi á lóð nr. 59 við Öldugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 18. júní 2018 til og með 16. júlí 2018. Engar athugasemdir bárust. Stækkun: 2,6 ferm., 6,4 rúmm. Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23.03.2017 við SN180192. Samþykki meðeigenda dags. 22.05.2018 fylgir erindi. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.