Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
STS Island ehf.
dags. 3. desember 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.0 sem markast af Laugavegi, Frakkastíg, Hverfisgötu og Vitastígs vegna lóðarinnar nr. 51 við Laugaveg. Í breytingunni felst að gerður er nýr byggingarreitur fyrir svalir á norðurhlið hússins, samkvæmt uppdr. Random ark ehf. dags. október 2014. Tillagan var grenndarkynnt frá 12. febrúar til og með 12. mars 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar