Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. febrúar 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr norðan við fjölbýlishús á lóð nr. 16 við Vesturbrún. Erindi var grenndarkynnt frá 3. mars til og með 31. mars 2014. Engar athugasemdir bárust. Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa. Stærð: 41,6 ferm., 147,5 rúmm. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.