Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. nóvember 2017 var lögð fram fyrirspurn Davíðs Þórs Einarssonar mótt. 6. nóvember 2017 um að setja kvisti og svalahurð á húsið á lóð nr. 6 við Hamarsgerði. Einnig er lagður fram tölvupóstur Davíðs Þórs Einarssonar dags. 7. desember 2017 þar sem fallið er frá að setja svalahurð á húsið. Fyrirspurninni var frestað og er nú lögð fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. desember 2017.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. desember 2017.