Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Helga Mars Hallgrímssonar dags. 28. febrúar 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholts 1 vegna lóðarinnar nr. 17-23. Í breytingunni felst að gerðir eru nýir byggingarreitir fyrir viðbyggingar við húsið, sunnan- og austanmegin, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf. dags. 28. febrúar 2018. Erindi var grenndarkynnt frá 30. apríl 2018 til og með 28. maí 2018. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar