Á fundi skipulagsfulltrúa 4. mars 2016 var lögð fram fyrirspurn Elfu Þorgrímsdóttur, mótt. 17. febrúar 2016, varðandi byggingu sólskála við húsið nr. 21 á lóð nr. 11-21 við Prestbakka. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. mars 2016.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. mars 2016.