Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. júní 2020 var lögð fram fyrirspurn Bjarna Þórs Aðalsteinssonar dags. 23. júní 2020 um að setja svalir á suðurhlið hússins á lóð nr. 27 við Mávahlíð, samkvæmt skissu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júlí 2020.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júlí 2020.