Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. október 2017 var lögð fram fyrirspurn Fjalar Sigurðarsonar, mótt. 26. september 2017, um að rífa bílskúr á lóð nr. 66 við Sörlaskjól og byggja nýjan í sömu hæð og aðliggjandi bílskúrar á lóðunum nr. 34 og 68 við Sörlaskjól ásamt stækkun hússins, samkvæmt uppdr. P
ARK teiknistofu sf.
, dags. 22. september 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. október 2017. .
Svar
Ekki er gerð athugasemd við erindið. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. október 2017.