Á fundi skipulagsfulltrúa 27. september 2013 var lögð fram fyrirspurn Gunnlaugs Jónassonar f.h. Hverfisprents og Hverfis ehf dags. 26. september 2013 varðandi stækkun bakhúss á lóðinni nr. 78 við Hverfisgötu ásamt breytingu á notkun, samkvæmt uppdr. Gunnlaugs Jónassonar dags. 21. ágúst 2013. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn dags. 2. október 2013.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. október 2013.