Á fundi skipulagsfulltrúa 15. apríl 2016 var lögð fram fyrirspurn Guðmundar Gunnlaugssonar, mótt. 21. mars 2016, um að innrétta tvær nýjar íbúðir og kaffihús á 1. hæð hússins á lóð nr. 19 við Tunguveg ásamt hækkun á þaki hússins, samkvæmt uppdr. Guðmundar Gunnlaugssonar, dags. 15. mars 2016. Einnig er lögð fram greinargerð Ólafíu M. Magnúsdóttur og Sæmundar Pálssonar f.h. T-19 ehf. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. apríl 2016.
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. apríl 2016.