Á fundi skipulagsfulltrúa 30. janúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 27. janúar 2015. Sótt er um leyfi til að endurinnrétta húsið á Laugavegi 36 og byggja 3-4 hæða steinsteypta bakbyggingu og innrétta hótel sem tengist framhúsi á 1. hæð og húsi á nr. 34A á lóð nr. 36 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir. Leita þarf umsagnar Minjastofnunar áður en byggingarleyfi er gefið út.