Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. júní 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja úr timbri og gleri með koparklæddu timburþaki óeinangraðan og óupphitaðan blómaskála á þaki bílskúrs við einbýlishús á lóð nr. 22 við Vesturbrún. Grenndarkynning stóð yfir frá 27. júní til 25. júlí 2013. Engar athugasemdir bárust. Stærðir stækkun: 14,4 ferm., 37,3 rúmm. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.