Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
GP-arkitekta ehf.
, dags. 9. mars 2017 um breytingu á skilmálum deiliskipulags Örfiriseyjar vegna lóðar nr. 45 við Fiskislóð. Í breytingunni felst breyting á nýtingarhlutfalli lóðar, samkvæmt tillögu, dags. 3. mars 2017. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna til GP-arkitekta, dags. 10. febrúar 2017. Tillagan var auglýst frá 13. júní 2017 til og með 25. júlí 2017. Engar athugasemir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar