Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. júlí 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvisti og nýja steinsteypta forstofu við aðalinngang einbýlishússins á lóð nr. 78 við Langagerði. Erindi var sent til grenndarkynningar frá 28. júlí til 23. ágúst 2011. Samþykki hagsmunaaðila bárust 2. og 4. ágúst 2011 og er erindi nú lagt fram að nýju. Meðfylgjandi er bréf hönnuðar dags. 20.6. 2011 Stækkun: 40,4 ferm., 109 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 8.720
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.