Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. maí 2019 var lögð fram fyrirspurn Þorsteins Viðarssonar og Hjördísar Árnadóttur mótt. 14. maí 2019 um uppbyggingu á lóð nr. 6 við Njörvasund sem felst í að koma fyrir litlu einbýlishúsi fremst á lóðinni fyrir framan núverandi hús. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. júní 2019.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. júní 2019.